Öðruvísi blogg!
Ég þoli illa...
Leiðinlegt veður
Peningaleysi
Lítinn tíma
Lítinn svefn
Mikinn kulda
Kveðjustundir
Þungar töskur
Mikinn heimalærdóm
Að vera svöng
Að vera of södd
Leiðinlega tónlist
Að eiga ekki bíl
Að taka strædó
Of heitt vatn
Of kalt vatn
Hluti sem ég hef ekki efni á að kaupa
Höfuðverk
Bakverk
Að verða veik
Að þurfa að vinna til að fá pening
Stærðfræði þegar ég skil hana ekki
Heita klósettsetu eftir einhvern annan en mig
Að fólk sem ég vil hafa nálægt mér sé langt í burtu frá mér
Slyddu
Of mikla og kalda rigningu
Að trén deyji á vetrunar
Að eiga ekki inneign
Að coke sé svona gott
Að ætla að gera eitthvað en gera það ekki
Að fá lánaðann pening
Mikla óvissu
Að detta út af msn
Að komast ekki á netið
Þegar fólk svarar ekki símanum þegar ég er að hringja
Þegar fólk svarar ekki smsum sem ég sendir
Að detta
Mikla bið
Mikið af stigum
Þröngar lyftur
Að fara ein í lyftu
Að vera lofthrædd
Að fá innilokunarkennd
Leiðinlegt sjónvarpsefni
Mikið rusl
Að nenna ekki alltaf að laga til ruslið eftir mig
Þegar ég nenni ekki einhverju sem ég veit að ég þarf að gera
Þegar fólk lýgur að mér
Rifrildi
Óhrein föt
Tyggjóklessur á götunni sem maður stígur í og fær undir skóna
Bílslys
Öll slys
Þegar mér bregður of mikið
Varaþurrk
Asnalegar myndir af mér á netinu
Að sofa yfir mig á morgnanna
Að heimurinn sé svona stór
Að vera eins forvitin og ég er
Að mismæla mig asnalega
Að hafa ekkert að gera
-Hófí
Vinnavinnavinna :)
ég er loksins komin með vinnu!:D eftir langa og leiðinlega bið þá fékk ég loksins svar! :) ég fékk semsagt vinnu í álverinu og ég byrja 1.mars á 3 vikna námskeiði..ég verð á námskeiði frá 8 - 6 alla virka daga og frí um helgar :) svo þegar námskeiðið er búið þá fer ég á vaktavinnu :) ég hlakka alveg smá til, en kvíður sam líka því ég er ekki alveg klár við hverju er að búast.
Dóttir mín átti afmæli á mánudaginn :) þá varð hún 7 ára :) ég er mjög stolt :D
Um daginn vorum ég og Ellen að fara á reyðarfjörð, svo þegar við vorum í fáskrúðsfirði á leiðinni til baka gerðist hið ótrúlega!! við fórum útaf oní skurð sem var fullur af snjó, sem betur fer!! við fórum þarna í dag og sáum staðinn ekki með neinum snjó og það var ekki fallegt!! en allavega, þá kom björgunarsveitin og bjargaði okkur uppúr skurðinum, enginn meiddist, nema kannski bíllinn en allt er í toppstandi núna :)
sko ég var búin að blogga mjög flott áðan en það eyddist þegar ég reyndi að setja mynd inná líka!! ég man ekki helminginn af því sem ég var búin að skrifa! En so be it! ég nenni ekki að reyna að muna það ;P
Ég bloggaði líka í gær á http://hae.bloggar.is getið kíkt á það ;)
En ég held ég hafi það ekki lengar í bili :)
-Hófí

2007!!
Jæjja gott fólk, solldið langt síðan síðasta blogg var gert, og það er mikið mikið búið að gerast líka síðan það var gert, en ég ætla að bæta það upp hér og nú ;)
Þetta blogg á reyndar að fara í upprifjanir af árinu 2007, sem var ekkert afskaplega skemmtilegt ár, reyndar með þeim verri, en þrátt fyrir það þá voru ýmsir ljósir punktar sem komu og ég ætla að fara yfir þá núna
Árið byrjaði ágætlega ég fór suður í janúar og skólinn byrjaði, ég, Krissa og Sólrún vorum ALLTAF saman svo einstaka sinnum hittum við strákana.

Fyrripartur ársins, eða fyrir sumarið var voðalega lítið gert og tilbreytingalaus, við stelpurnar fórum á öll böll sem FÁ hélt og eftir páskana fórum við svo á söngvakeppni framhaldsskólanna sem var haldin á Akureyri. Ferðin sjálf var ágæt þótt innihaldið hafi kannski ekki verið það besta!
Um sumarið ætlaði ég svo að fara að vinna í sveitinni hjá Sólrúnu, en hætti svo við og ákvað að fara bara í sveitasæluna heima ;)
Svolítið seint samkvæmt öðrum, en ekki mér, ákvað ég að fara að drýfa í þessu bílprófi. 1.Júlí tók ég svo bóklega bílprófið og náði því í fyrstu tilraun!;D
Sumarið fór svo að mestu leiti í að vinna þar sem ég var í 2 vinnum, bæði var ég Verkstjóri unglingavinnunnar á Breiðdalsvík og Þjónn á Hótel Staðarborg. Og þar sem ég var meira um helgar á Staðarborg og bara virkadaga með unglingavinnuna þá voru fáar helgar sem fóru í algjört frí, en maður náði að kreista út sumar og endaði eina í Fáskrúðsfirði á Frönskum dögum með Elvu Báru ;)
5.júlí var svo stór dagur hjá mér þar sem ég varð mamma þennan dag J ég gerðist Sos-styrktarforeldri og ég styrki 6 ára stelpu frá Túnis
Ég hafði tekið bóklega bílprófið í júlí en átti nú eftir verklega, 2 mánuðum og 8 dögum eftir að ég náði bóklega prófinu, eða 9. ágúst fór ég svo í verklega prófið og náði því :D þetta var stór áskorun þegar ég svo kom í bæinn því það gekk ekkert alltof vel að aðlagast umferðinni þar.
16.ágúst fór ég svo aftur suður því skólinn var að fara að byrja, en enn merkilegri áfangi var samt á næsta leyti, 18.ágúst varð ég nefnilega 18 ára og öðlaðist þar með sjálfræði mitt ;D ég ákvað nú að fagna því með stæl svo 21.ágúst fór ég og fékk mitt fyrsta tattoo :D

Önnin byrjaði vel ég, Krissa og Sólrún vorum óaðskildar fyrstu vikuna eða svo, svo eftir því sem leið á önnina þá fórum ég og Halla að vera meira saman, og urðum á endanum óaðskiljanlegar, við héldum samt að við myndum ekki hittast eins mikið því Halla ákvað að fara ekki í skóla, en ef eitthvað er þá vorum við bara meira saman en þegar við vorum báðar í FÁ

Í byrjun september byrjaði ég svo í vinnu með skóla og varð Bakarameistarinn í Glæsibæ fyrir valinu! Sé ég á engann hátt eftir því að hafa unnið þar. Þótt vinnan hafi kannski ekki verið sú besta þá var hitt starfsfólkið æðislegt J og það er einmitt það sem gerði það að verkum að maður mætti á annað borð í vinnuna.
Í október ákvað ég svo að eftir áramót myndi ég flytja austur aftur svo ég lagði inn umsókn í Menntaskólann á Egilsstöðum.
Önnin gekk hægt en örugglega fyrir sig og 2.Nóvember kom Halla til mín í vinnuna með miða á atburð sem ég held að hafi verið hápunktur ársins 2007. Þetta var miði á tónleika með Dj Tiesto, TIESTO. Við vorum nú ekki alveg að trúa því að við værum í alvörunni að fara að sjá meistarann sjálfann og í nokkra daga eftir var ég ekki alveg að trúa því að ég hafi Í ALVÖRUNNI farið og séð hann með mínum eigin augum. Ég get alveg sagt það að þessi dagur á eftir að vera fastur í minninu þar til ég fer í gröfina.

Í desember byrjuðu svo prófin og ég var búin í þeim 10.desember. Svo nokkrum dögum eftir prófin var ferðinni heitið heim á Breiðdalsvík
Á milli hátíða ákvað ég að verða kona með konum og gáði loksins hvernig mér hafi gengið í prófunum, ég var nenilega viss um að falla í öllu, og komst ég að því að ég náði einu fagi með 7 :D í hinum féll ég, en ég er samt bara frekar sátt því þetta er betra en það sem ég bjóst við ;D
Svo eftir að vera búin að missa alla von um að komast inní ME, vegna þess að þau voru ekki að svara mér, fékk ég loksin bréf og í því stóð að ég fengi inngöngu í skólann en ekki vistina, sem virkar náttúrulega ekki því ég verð nú eins og aðrir menn að búa einhverstaðar. Svo mamma hringdi fyrir mig 3.jan í skólastjóra ME til að sjá hvort ekki væri hægt að gera eitthvað, en hann vildi ekki hlusta á hvað mamma hafði að segja svo það endaði með því að eftir áramótin myndi ég taka mér pásu frá skóla.
Áramótunum var svo fagnað með stæl og það sem tekur við núna er ennþá óljóst, ég er búin að leggja inn umsókn í Álverið, en ég er að bíða eftir svari frá þeim. Ef ég fæ ekki vinnu þar þá veit ég ekki alveg hvað ég geri, en það kemur allt í ljós.
Ég stefni á skóla aftur eftir sumarið. Ég finn það mjög mikið að mig langar að vera í skóla.
Ég, Arna Silja og Elva Bára erum allar byrjaðar með síðu saman J ég ætla samt ekki að hætta með þessa ;) slóðin á hina síðuna er http://hae.bloggar.is ;D allir kíkja þar og kvitta

En ég held ég hafi það ekki lengra í bili, vonandi bætir þetta blogg upp þessa 2 mánuði sem ekkert var bloggað hér :P
-Hófí
Hver vill VINNA....

ég meina kommon! enginn getur staðist þennan svip :P er það nokkuð?


Annars er allt gott að frétta :) Ég er svona að spá og spökulera í að fara í ME eftir áramót :) ég er búin að senda inn umsókn í skólann, og þau eru búin að fá þessa umsókn líka :) svo ég er bara að bíða eftir svari. Ef ég fæ já þá fer ég úr borginni, en ef ég fæ nei þá býst ég við því að dúsa hér í borginni lengur :P
Ég fór að pæla í einu í dag. Við fórum á myndlistasýningu í Myndlista og Formfræði í dag, og á sýningunni voru myndir af krökkum úr Öskjuhlíðarskóla. Svo eftir að við vorum búin að fara í gegnum salinn og skoða allt þá fórum við á bókasafnið þarna og þar voru 3 bækur eftir listamanninn, sem voru bara myndir sem hún hefur tekið. En í einni bókinni voru bara tvíburar eða þríburar. Svo á sumum myndunum voru tvíburar sem voru giftir tvíburum og þau voru öll eineggjatvíburar. Svo fór ég að pæla í því að ef að ég væri eineggjatvíburi og ég og systir mín værum giftar eineggjatvíburum og svo myndum við báðar eignast börn með mönnunum okkar, ætli börnin verði eins?
En þetta er bara pæling, ég hef aldrei einu sinni hugsað útí þetta hehe :P
En eitt, er ekki alveg örugglega bara október?! í dag eru að ég held 2 mánuðir í jólin, því eftir mínum bestu heimildum er 24.október. En þrátt fyrir að það séu alveg 2 mánuðir í jólin þá er samt allt í jóladóti allstaðar! Við í Bakarameistaranum erum farin að selja jólakökur, á laugardaginn fór ég í Hagkaup og það sem tók á móti mér voru jólasveinar, í dag fór ég í Byggt og Búið og þar uppi hjá ljósunum var komið fullt af jólaljósum. Er ég ein um að finnast þetta solldið snemmt?:S ég held þetta mætti bíða í svona hálfann mánuð allavega.
En ég er samt að pæla í að hætta í bili. Allir svara spurningunum mínum :P
Hófí

Hallóspalló!
September er einhvernvegin gleymdur mánuður hjá mér allavega finnst mér..ég man aldrei eftir neinu sem gerðist í september nema náttla turnarnir og silja sjöfn á afmæli..eftir öðru man ég varla..:/
Um daginn átti ég afmæli :) þá varð ég stór :) stækkaði alveg helling :P hehe nú get ég allavega sagt að ég eigi mig sjálft því ég á mig sjálft :P
Ég er byrjuð að keyra í reykjavíkinni fögru, ekki get ég sagt að það hafi gengið neitt vel í byrjun því ég drap á bílnum allstaðar þar sem ég þurfti að stoppa alveg..og svo tók það mig alveg eilífð að koma honum af stað aftur. En það er nú allt komið núna :) mjög mjög ánægð með það :) borgarbúar ættu að geta treyst sér útá götu núna ;)
Svo um síðustu helgi þá fór ég í Keflavík :) Hitti þar Ástu og unnusta hennar Sigga :) svo hitti ég líka prinsinn þeirra :) hann er algjört krútt :D
Svo seinna um kvöldið hitti ég líka strák sem heitir Ari, þegar við vorum lítil lékum við okkur smá saman :P hehe alltaf gaman að hitta fólk sem maður þekkti þegar maður var lítil :D
Á morgun er ég í fríi í skólanum :D kennsla fellur niður eftir 10 á morgun útaf busavígslunni :P og ég á einmitt ekki að mæta í skólann fyrr en eftir 10 svo ég fæ frí ;) ég ætla mér samt að fara í klippingu kl 10 á morgun og svo aðeins að kíkja uppí skóla að sjá þetta :P svo um kvöldið verður vonandi skellt sér á ball hjá borgó :D hlakka alveg solldið mikið til þess :D:D
Frá því skólinn byrjaði hef ég aldrei farið í skólann alla 5 daga vikunnar því það er alltaf frí hjá mér allavega 1 dag:P en það verður ekki svo leiðist það sem eftir er af önninni :P hehe þó þetta sé nú solldið ljúft :)
Síðan ég kom suður hef ég farið oftar í bíó heldur en ég hef gert alla mína æfi!! (næstum) frá 19.ágúst til 1.sept fór ég 4 sinnum í bíó..það gera 4 skipti á 12 dögum..það er nú solldið mikið finnst mér..ég var nú bara að segja frá því :P hehe
Í gær byrjaði ég í nýrri vinnu :) er að byrja að vinna hjá Bakarameistaranum í Glæsibæ :) held þetta verið bara fínt :) verð að vinna alla mánudaga og föstudaga og svo aðrahvora helgi :)
Ég á eftir að vera klinglótt og meira en það örugglega eftir önnina :P því eins og fólk sem þekkir mig kannski veit að þá er ég alveg veik fyrir bakarísmat og ég myndi alveg með glöðugeði borða hann í öll mál ef ég gæti :P hehe
En ég ætla að passa mig að fara í það far :)
Í gær ákváðum ég og sólrún líka að hætta að drekka coke, það gekk ekki betur svo að sólrún byrjaði í gær að þamba coke og ég sat heima grenjandi yfir því að langa í coke en mega ekki fá :P ég byrjaði svo á því þegar ég kom í skólann í morgun að kaupa mér coke, svo fór ég í tíma og gleymdi cokinu á borðinu frammi í skólanum óopnað og allt..ég keypti mér samt annað coke áðan bara:P hehe
Ég get samt glöð sagt að ég vann þetta átak!:P hahaha ég fékk mér ekkert coke í gær ;)
En ekki ætla ég að hafa það lengar í bili..held þetta sé bara komið nó :)
Hófí :)
Sumarið á enda!
En það er nú solldið búið að gerast síðan síðasta blogg var gert. Ég nenni samt því miður að fara alla leið aftur í tímann að síðasta bloggi og segja frá öllu sem hefur gerst síðan þá.
Á mánudaginn hætti ég alveg að vinna :) svo núna er ég í "sumarfríinu" mínu :P hehe á morgun fer ég svo í bæinn aftur :) og á föstudaginn var planið að halda uppá smá afmæli því mitt er á laugardaginn :) ég veit samt ekki alveg hvernig það fer :P en það reddast ;) svo á laugardaginn er náttúrulega menningarnótt :D svo þá verður skellt sér niður í bæ ;D
Í fyrradag fékk ég fyrstu afmælisgjöfina mína samt :) Björgvin, Silja og Sindri ætla að gefa mér fyrsta tattooið mitt :D Ég ætla að hringja á eftir og panta mér tíma :) ég hlakka nú solldið til sko :P
Í næstu viku byrjar svo skólinn aftur, það verður ágætt held ég :) koma smá reglu á hlutina aftur :)
Ég er svo vonandi komin með vinnu hjá Bakarameistaranum :) það verður æði :)
hmm já, ég lofaði sjálfri mér að setja þetta inná næsta blogg, en um daginn vann ég Gumma í buzz! haha hann varð solldið sár greyið :P hann sagði neflilega við okkur í byjun að það væri ekki séns að við myndum vinna hann ;)
Ég held samt að það sé bara allt komið núna.
-Hófí
p.s. ég held ég myndi aldrei vilja vera rolla. En þið?
Suður á morgun :)
En já, skemmtileg byrjun á bloggi!
Ég "eignaðist" stelpu frá Túnis :) og hún er 6 ára. Ég er fékk þær upplýsingar á mánudaginn. Og allann mánudaginn var ég eitt stórt bros!!:D Hún er voða sæt stelpan sem ég fékk :) Ég ætla að kaupa fullt af litlum gjöfum handa henni :P litabækur og liti og svona :) Ég hlakka til bara við að hugsa um þetta sko!:P
Á morgun verður ferðinni heitið suður :) fer svo á föstudaginn á Hólmavík því það er ættarmót, eða niðjamót þar sem þetta eru bara afkomendur ömmu og afa, en við erum nú solldið mörg. Ég held að ég sé númer 80 í röðinni, og það er nú slatti af krökkum búin að fæðast síðan ég fæddist :P Ég hlakka alveg smá til að fara :) hitta alla, er ekkert búin að hitta þetta lið síðan á síðasta ættarmóti og það var fyrir 3 árum síðan.
Ég kem svo aftur hingað austur á miðvikudaginn eftir viku :) Þetta verður stuð ferð, finnst samt leiðinlegast af öllu að geta ekki hitt Sólrúnu, en ég hitti hana bara vonandi um Versló í staðinn :)
Ég er búin að vera pínu lasin :( fékk einhverja sýkingu í augun, það er nú solldið vont get ég sagt ykkur. Svo fékk ég krem til að setja í augun til að losna við þetta, og ég get alveg sagt ykkur að það er sko óþæginlegt! það er ekki vont, en það er mjög óþæginlegt, þar sem ég sé mjög illa fyrst eftir að þetta fer í augun og þar til þetta fer úr þeim haha. En hvað geriri maður ekki til þess að vera með góða heilsu?
Ojj ég var að mála í gær í vinnunni grindverk og það var allt í fuglakúk!! ógeðslegt, og hann var allur fjólubjár og sumstaðar var hann búinn að leka niður með grindverkinu!! ógeðslegt. Ég vildi bara segja ykkur frá þessu. Fjólublár er ekkert í svakalegu uppáhaldi hjá mér í augnablikinu allavega haha.
Unglingavinnan er búin svo núna er ég bara að vinna hjá hreppnum, var að því áður líka, en ég er bara að gera það sem ég gerði eftir hádegi núna, finnst það frekar skrítið, vinnudagurinn er miklu lengri finnst mér útaf því að þegar kl er að verða 12 þá finnst mér hún vera að verða 4 eða hálf 5. Ferlega asnalegt eitthvað.
Ég held ég sé búin að segja frá því helsta núna sem hefur gerst síðan síðast, allavega því sem ég man sérstaklega eftir :P
Muna bara að skrifa í gestabókina og skoðanir :) þá er ég allavegana kát :D
Elskið friðinn og strjúkið kviðinn ;)
Hófí
Ég er orðin "mamma"!:)
hæhæ smááá langt síðan ég bloggaði. Ákvað að það væri nó búið að gerast uppá síðkastið til þess að blogga :P
Síðustu helgi fór ég suður :D það var geggjað! hitti alla sem ég vildi hitta og var bara mjög ánægð með helgina í heild sinni, ýmislegt sem kom samt uppá á laugardaginn og sumt fólk þarf að læra að hætta þegar það er kominn tími og meta stað og stund. Annars var allt flott og fínt :)
Ég kom svo bara heim á sunnudaginn og daginn eftir fór mamma frá mér og suður, svo á þriðjudaginn þá flaug hún til Kaupmannahafnar og verður í burtu í örugglega um 2 vikur eða eitthvað. Hún og Óskar pabbi eru saman úti núna :)
Það er frekar lítið búið að gerast samt. Er bara búin að vera að vinna síðan ég kom heim og búin að hanga mest hjá Ellen því það er voða leiðinlegt til lengdar að vera alveg ein. Svo er líka bara svo gott að vera hérna :D Í dag fórum við á Egs og verlsuðum eitthvað smá :P svo á morgun ætlum við líka og svo verður smá chill heima hjá mér annaðkvöld :) geggjað kúl :)
Annars veit ég ekki hvað ég get sagt frá mikið meira, ég gerðist samt "mamma" áðan :) ótrúlega stolt af sjálfri mér! ég fór semsagt á sos.is og gerðist styrktarforeldri :) ég fæ vonandi að vita meira á mánudag eða þriðjudag :) á eftir að fá mynd og upplýsingar um barnið, en ég veit ekki hvaðan það er og hvers kyn það er. Ákvað að styrkja bara þar sem þörfin er mest og það kyn sem þau halda að sé best fyrir mig. Mér finnst það ekki skipta neinu máli hvaða kyn það er :)
Allavega þá er ég að pæla í að hafa þetta nó í bili, sakna ALLRA (svo það verði enginn misskylningur eins og síðasta bloggi) sem eru fyrir sunnan og ég þekki! :) langar endalaust mikið að hafa alla hjá mér hérna bara :P
-Hófí
Góðan dag, Góðan dag!
ég verð nú að segja að í dag er ég í óvenju góðu skapi! þrátt fyrir að vera næstum ný vöknuð og allt, að þá er þetta fyrsti frídagurinn minn í 2 vikur! og ég gæti ekki verið ánægðari :D
Ég er að plana að koma suður næstu helgi :D hlakka úbersúper mikið til! ;) væri samt mestast til í að vera í bænum núna því að Sólrún er að halda uppá afmælið sitt og mig langar að vera þar!:/ en vonandi skemmtiði ykkur geggjað vel :D ég hitti ykkur öll bara næstu helgi í staðinni ;)
17.júní var síðustu helgi, mig langaði að vera í bænum. En ég, mamma, Elva Bára, Ellen og krakkarnir fórum á stöddann í kaffi til að styrkja strák þaðan sem er að fara í hjartaaðgerð í Boston. Sú aðgerð og ferðakostnaður er örugglega solldið mikill svo manni leið frekar vel eftir á :)
svo um kvöldið fór ég bara að vinna, var að vinna á laugardeginum líka, þá var ættarmót og við vorum á FULL allan tímann sem við vorum þarna! eða frá 13.00-23.45. Þetta kvöld var bara í ruglinu!!
Mig langar svo mikið að gera eitthvað geggjað í dag því að ég er í fríi! :) mig langar að vera í fríi aftur á morgun en ég held að það verði ekkert úr því :P Ég held samt að í kvöld fari ég til Hrefnu og hitti Elvu og við bökum pizzu :) YAY!!
Ég hef svo lítið að segja :/ ég sakna allra í bænum ennþá meira núna heldur en þegar ég gerði síðasta blogg, svo ég er alveg með fiðring í maganum yfir því að fara næstu helgi í bæinn, ég er sko ekki búin að bóka flug eða neitt, og það er ekkert alveg ákveðið, en ég býst mjög sterklega við því að fara næstu helgi!:)
En ég er svona að pæla í að hafa þetta nó í bili :)
-Hófí! c',)
vinnavinnavinna!
Ég er komin með vinnu :D jafnvel 2 ;) trúiði því? ein manneskja getur verið með 2 vinnur á breiðdalsvík :O hehe en málin standa svona að í dag þá hringdi ég í hreppstjórann og tjakkaði með bæjarvinnuna, hvort það væri enn til boða fyrir mig að vera verkstjóri í henni, og það var enginn annar búinn að sækja um svo ég fékk þá vinnu :D svo fór ég í prufu á Hótel staðarborg í kvöld. Ég vona svo innilega að ég fái þá vinnu, mig langar ekkert smá mikið að vinna hjá honum :) leyst líka miklu betur á þetta eftir kvöldið í kvöld. En ef ég fæ vinnuna á staðarborg þá verður minn dagur eiginlega bara vinna í allt sumar, eða frá 8 á morgnanna til 10-11 á kvöldin. En ég held að þetta verði lagi. Bæjarvinnan verður voða mikið chill bara held ég, þau eru einhver 8 fyrir hádegi og svo 3 eftir hádegi held ég. En ég fæ þá allavega pening fyrir þetta :P
Ég er eiginlega ekkert búin að heyra í fólkinu í bænum :( Ég reyndi eins og crazy manneskja að hringja í Krissu í gær en náði ekki í hana :( það hringdi ekki einu sinni hjá henni. Svo Sólrún sambandslaus mikið :( ætlaði mér að hringja í kvöld en var að vinna eins og óður maður. Ég allavega náði í Viggu í gær og þá hlýnaði mér um hjartarætur :P haha því ég náði í einhvern í bænum :) svo heyri ég í Höllu á hverjum degi eiginlega :P
Ég sakna ykkar allra solldið mikið sko!!
Ég kem suður í þessum mánuði einhvertíman, sennilega í lok mánaðar einhvertíman held ég. Ákveð það sennilega á mánudaginn. Svo kem ég náttúrulega í júlí á ættarmót :) það verður helgina 20 júlí, en ég mun ekkert koma austur fyrr en 23 eða 24 júlí því ég þarf að hitta manneskju þarna 23 :)
Ég og mamma sátum inni í eldhúsi í fyrradag og vorum að horfa á sjónvarpið, svo kom auglýsing sem var svona:
Ristruflanir
Ristruflanir er hægt að laga.
Svo kom eitthvað meira sem ég man ekki. Þetta var bara svona tal auglýsing, engar myndir eða neitt þannig. Bara hvítir stafir á bláum bakgrunni eða eitthvað.
Svo sat ég hérna í solldin tíma og var að spá í þessari aulýsingu og var að spá hverskonar ristruflanir þetta væru, var að hugsa um líkamsparta sem áttu að heita ris eða eitthvað en fann ekkert sem passaði svo ég spurði mömmu hvað ristruflanir væru og mamma hvíslar að mér : hjá karlmönnum!
haha er hægt að vera ljóska?
Ég hugsa alltaf þegar það er að koma helgi : ohh vá, helgarfrí, æðislegt að vera komin í smá helgarfrí.
Eins og maður sé búin að vera á fullu hérna alladaga og svo kemur helgarfrí. Allir dagar eru búnir að vera sem laugardagar fyrir mig því ég er hvorki í skóla né að byrjuð að vinna. Ótrúlegt hvernig maður hugsar alveg :P
Mig dreymdi um daginn að ég hafi dáið, svo í draumnum var ég bara ofaní gröfinni ásamt fullt af öðru fólki, svo hringdi síminn í alvörunni og áður en ég svaraði þá hugsaði ég "ég get ekkert svarað! hann heyrir ekkert í mér, ég er dáin!". Það var frekar óþæginlegt að vakna og halda að ég hafi verið dáin.
Ég er búin að vera ótrúlega dugleg síðan ég kom heim að fara í gegnum herbergið mitt :) fór í gegnum skápinn og hillurnar, þurkaði svo af öllu og gerði svaka fínt :D á bara eftir að riksuga og svona núna ;)
Ég var vakin í gær á mjög svo óþæginlegann hátt!! Robbi kom inn og öskraði RIIIICEEE!! haha það var ekki gaman!
Mig langar til útlanda!
Ohh jæjja, þetta blogg er að verða að engu. Er að spá í að hætta áður en þið farið að halda að ég sé alvarlega veik!
-Hófí
p.s. allir taka þátt í skoðanakönnuninni ;)
